Finna MAC addressu fyrir þráðlaust net - Windows 8

Til að tengjast þráðlausu neti HÍ (HINET) þurfið þið að skrá MAC addressu tölvunnar. Þetta er í raun einkennisnúmer tölvunnar á þráðlausa netinu. Svona finnið þið MAC addressuna í Windows 8. (Hér má sjá myndskeið hvernig það er gert í Windows 7. Nokkuð svipað fyrir utan fyrstu tvö skrefin).

 

1. Smellið á Windows takkann á lyklaborðinu eða farið með
bendilinn neðst til vinstri og smellið til að komast í "Start"
valmyndina.

2. byrjið strax að skrifa og skrifið "cmd" og smellið á Enter til að opna Command Prompt gluggann.

Command Prompt

 

3. Þegar svarti glugginn opnast þarf að skrifa getmac /v (bil á milli c og /) og smella á "Enter".

getmac /v

4.
Finnið línuna sem inniheldur upplýsingar um þráðlausa netkortið. Oftast
„Wireless Network...“. Í dálkinum „Physical Address“ finnið þið svo
þessa svokölluðu MAC addressu sem þið þurfið að nota til að sækja um
þráðlausa netið í Uglunni.

5. Þegar MAC addressan er fundin þarf að skrá hana í Ugluna. Hér má sjá nánar hvernig þið sækið um þráðlausa netið: http://rhi.hi.is/wifi