Nettengingar
Það eru nokkrar leiðir til að tengjast háskólanetinu:
Tengjast þráðlaust á háskólasvæðinu
Ef þú ert með þráðlausa tölvu tengda á háskólasvæðinu við HINET þá ertu sjálfkrafa tengd(ur) háskólanetinu. Nemendur hafa kost á að tengja tvö tæki við þráðlausa netið en starfsmenn geta skráð fleiri. Sjá nánar hvernig þú tengist þráðlausa netinu.
Sjá útbreiðslu senda.
Tengjast netinu með kapli
Starfsmenn Háskóla Íslands hafa margar af sínum vinnutölvum tengdar beint við háskólanetið með kapli. Borðvélar eru yfirleitt skráðar með fasta IP tölu. Sótt er um IP tölur í Uglu (aðeins fyrir starfsmenn). Sjá nánar um IP umsókn.
Garðanet
Íbúar á Stúdentagörðum HÍ hafa aðgang að fríu neti í gegnum kapal. Lesið hér nánar um Garðanetið.
Tengjast með VPN tengingu hvar sem er
Það er hægt að tengjast háskólanetinu með VPN næstum hvaðan sem er úr heiminum svo lengi sem tölvan er nettengd. Nánar um VPN tengingar.
Tengjast með ADSL að heiman
Til að geta tengst beint við háskólanetið að heiman þá þarf að sækja um ADSL tengingu í gegnum okkur. Þá þarf viðkomandi að hafa ADSL línu frá símafyrirtæki en umferðin fer í gegnum okkur. Nánar um ADSL er að finna hér.








