EndNote
Háskóli Íslands hefur gert samning um kaup á EndNote hugbúnaðinum. Þessi samningur kveður á um leyfi fyrir nemendur og starfsmenn HÍ
Hugbúnaðurinn er í boði fyrir Windows og MacOs X.
Vinsamlega athugið að hugbúnaðurinn er ekki ætlaður til dreifingar.
Til að nálgast EndNote skráið ykkur þá inn í Uglu og farið þar undir Tölvuþjónusta -> Hugbúnaður -> EndNote

Þegar komið er á síðuna getið þið nálgast forritið. Munið að lesið yfir skilmálana og fylgja þeim. Þið sækið forritið annað hvort fyrir Windows eða Makka með því að smella á viðeigandi tengil.

Þegar búið er að sækja forritið þá þarf að setja það upp.
Hér má finna nokkra punkta um notkun á Endnote

