Ugla
Leiðbeiningar um Uglu munu í náinni framtíð verða í sjálfri Uglunni ásamt því að setja það helsta hér.
Kennurum er bent á að mikið af leiðbeiningum er að finna á vef Kennslumiðstöðvar: http://kemst.hi.is/vefur/ugla/efnisyfirlit.php
Hvað er Ugla?
Uglan, innri vefur Háskóla Íslands, er mikilvægur upplýsingavettvangur og öflugt verkfæri starfsfólks, nemenda og kennara Háskólans. Ákveðnir hlutar Uglu eru opnir eins og t.d. kennsluskrá Háskólans sem tilvonandi nemendur þurfa að hafa aðgang að en aðgangur að öðrum hlutum krefst hi-notandanafns og lykilorðs.
Innan Uglu eru saman komin þau upplýsinga-, samskipta- og skráningakerfi sem snúa að námi og starfi innan Háskólans og má t.d. nefna kennsluvefi námskeiða, kennslukönnun, skráningar í námskeið, stofubókanakerfi, stundaskrár, vinnuskýrslukerfi, verkefnavefi, prófakerfi, könnunarkerfi og umsóknakerfi vegna ýmis konar þjónustu. Aðgangur notenda að kerfum Uglu er mismunandi og miðast við þarfir og hlutverk hvers og eins. Aðganginum er stýrt út frá notandanafni.
Veffang Uglu er er ugla.hi.is.


