Þráðlaust net stillt í Windows 7

Hér er myndskeið sem sýnir hvernig þú tengir Windows 7 við þráðlausa HINET-ið. Ef þú ert ekki búin(n) að sækja um aðgang fyrir tölvuna þá skaltu fylgja þessum skrefum.

Vandamál.

Ef tengingin tókst ekki og þú ert viss um að vera búin(n) að sækja um þráðlausa netið, þá skaltu kíkja á myndskeiðið hér að neðan og athuga hvort það leysi vandann. Ef ekki þá ertu velkomin(n) að kíkja með tölvuna í Tölvuþjónustu UTS.