Fjölnotendatölvur
Allir notendur HÍ eiga möguleika á að nýta sér fjölnotendatölvur HÍ. Katla (katla.rhi.hi.is) tók við af Herðubreið sem hafði verið mikið notuð fjölnotendavél. Jötunn (jotunn.rhi.hi.is) er sérhæfð Linux fjölnotendavél og gegnir einnig því hlutverki að vera inngangur að tölvuþyrpingu Reiknistofnunar.
Til að nota þessar tölvur, þarf bara að tengjast þeim með SSH forriti. UNIX/Linux notendur geta auðveldlega tengst með skipuninni: ssh jotunn.rhi.hi.is
Windows hefur ekki innbyggt ssh og því þarf að setja það sérstaklega upp á vél notandans. Mælt er með forritinu PuTTY á þessum vef: http://www.rhi.hi.is/opin_forrit

Notendur fá svartan glugga með textabendli og geta skrifað skipanir eins og t.d. ls eða pwd eða w eða cd eða top eða help .
Windows notendur geta einnig sett upp forritið Cygwin sem gefur möguleika á að nota gluggakerfin á fjölnotendavélunum. Hver notandi er oft með fleiri slíka glugga inn á eina vél.

