Stundatöflur
Mikið hefur verið beðið um að gera stundatöflur tölvuvera aðgengilegar notendum svo þeir geti áttað sig á því hvar laus tölvuver séu án þess að þurfa að mæta á staðinn.
Nú getum við upplýst ykkur um það að nú
er hægt að nálgast stundatöflurnar í Uglu. Ef þið smellið á
Tölvuþjónusta -> Tölvuver -> Stundatöflur tölvuvera þá fáið þið
upp lista með stundatöflum tölvuvera.

