Að finna MAC addressu fyrir þráðlaust net - MacOs Tiger

Hér eru leiðbeiningar hvernig þú finnur MAC addressu fyrir þráðlausa netið í MacOs Tiger. Frekari leiðbeiningar varðandi að tengja vélina þráðlaust má finna hér.

1. Fyrst þarf að finna MAC addressu þráðlausa netkortsins. Hægt er að finna þetta númer með eftirfarandi aðferð. Smellið á Eplið og veljið þar "System Preferences".

Epli - System Preferences

2. Tvísmellið hér á "Network".

System Preferences - Network

 

3. Veljið í "Show" listanum "AirPort". Smellið á "AirPort" flipann og þar undir birtist "AirPort ID" sem er þessi MAC addressa sem við leitum að.

Network - AirPort - AirPort ID

4. Munið að haka svo við "Show AirPort status in menu bar" til að geta auðveldlega tengst í framtíðinni.

5. Næsta skref er að skrá vélina í Uglu. Sjá nánar um það hér í  lið 2.