Að finna MAC addressu fyrir þráðlaust net - MacOs Leopard

Hér eru leiðbeiningar hvernig þú finnur MAC addressu fyrir þráðlausa netið í MacOs Leopard. Frekari leiðbeiningar varðandi að tengja vélina þráðlaust má finna hér.

1. Fyrst þarf að finna MAC addressu þráðlausa netkortsins. Hægt er að finna þetta númer með eftirfarandi aðferð. Smellið á Eplið og veljið þar "System Preferences".

Epli - System Preferences

2. Tvísmellið hér á "Network".

System Preferences - Network

 

3. Smellið á "AirPort" (heitir Wi-Fi í nýjum stýrikerfum) og smellið svo á "Advanced"

Network - AirPort - Advanced

4. Hér finnið þið MAC addressu þráðlausa netkortsins og kallast hún "AirPort ID" (heitir Wi-Fi Address í nýjum stýrikerfum)

Network - AirPort - Advanced - Airport ID

5. Næsta skref er að skrá vélina í Uglu. Sjá nánar um það hér í  lið 2.