• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

Opin forrit

  • Forrit

 

Forrit geta kostað mikla peninga og í flestum tilvikum er alltaf hægt að finna hliðstæðar útgáfur af dýrum vinsælum forritum eða svokölluð "Opin forrit". Eru þau í flestum tilfellum ókeypis.

Forsætisráðuneytið er með stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað sem lesa má um nánar hér: http://www.forsaetisraduneyti.is/upplysingasamfelagid/Frettaannall/nr/2878

Hér má finna vinsælan hugbúnað sem hægt er að nálgast frítt á netinu. Þetta er úrval af því sem við notum og mælum með.

OpenOffice

Open Office - Frjáls hugbúnaður sem hefur nær allt það sem Microsoft Office pakkinn býður upp á nema hvað buddan finnur muninn því það þarf ekkert að borga fyrir Open Office. Ritvinnsla, töflureiknir, glærukynningar o.fl.
http://www.openoffice.org/ 

 

Firefox

Firefox - Frjáls vafri sem margir eru farnir að velja í staðinn fyrir Internet Explorer. Firefox er þannig byggður að auðveldlega er hægt að aðlaga hann að þörfum hvers og eins, með því að bæta við hann  ýmiskonar viðbótum eða "plugins" og velja sér útlit sem manni hentar. Hægt er að sækja hann á mörgum tungumálum og meðal annars íslensku hér: http://www.mozilla.com/en-US/firefox/all.html
http://www.mozilla.com/en-US/firefox/

Google Chrome

Google Chrome - Öflugur vafri frá Google sem nýtur aukinna vinsælda meðal notenda. Hann er svipaður Firefox að því leiti að hægt er að nálgast óteljandi viðbætur (plugin) til að gera vafrann persónulegri og svo hann henti notkunarmynstrinu betur.
http://www.google.com/chrome

 

Opera

Opera - Vafri sem margir kjósa fram yfir bæði Explorer, Firefox og Chrome.
http://www.opera.com/

Safari

Safari - Vafri sem fylgir með Makkavélum en er nú einnig til fyrir Windows. Gott fyrir þá sem vilja vera í Makka umhverfi.
http://www.apple.com/safari/

Thunderbird

Thunderbird - Póstforrit sem svipar nokkuð til Outlook en að margra mati mun sneggra og auðveldara í notkun. Þetta er frjáls hugbúnaður og kemur frá Mozilla sem einnig framleiðir Firefox vafrann. Hér eru leiðbeiningar hvernig þú setur upp háskólapóstinn í Thunderbird. Thunderbird er til á íslensku ásamt fleiri tungumálum og má nálgast þá útgáfu hér: http://www.mozillamessaging.com/en-US/thunderbird/all.html
http://www.mozilla.com/en-US/thunderbird/

Gimp

Gimp - Frjálst myndvinnsluforrit. Það má í raun kalla þetta ókeypis Photoshop. Hér er hægt að gera allt það sem flestir kunna í Photoshop. Gimp er til á íslensku.
http://www.gimp.org/ 

Irfanview

Irfanview - Lítið en öflugt forrit sem á auðveldan og notendavænan hátt sýnir myndir og jafnvel video.
http://irfanview.com/

PDF-creator

PDF-creator - lítið forrit sem býr til PDF skrár. Notast eins og prentari nema þú velur PDF-creator í staðinn fyrir prentara og þannig býr það til PDF skjal.
http://sourceforge.net/projects/pdfcreator/

VLC media player
 

VLC media player - Þessi spilari er einn sá vinsælasti í dag enda ekki furða þar sem hann spilar nær því allar tegundir af mynd- og hljóðskrám sem boðið er upp á í dag. RHÍ notar þennan spilara sem sjálfgefin spilara fyrir video í öllum tölvuverum.
http://www.videolan.org/

 

FreeMind

FreeMind - Forrit sem býr til hugarkort í svipuðum stíl og MindManager.
http://freemind.sourceforge.net/

 

XMind

XMind - Annað forrit sem býr til hugarkort. Grunn útgáfan er ókeypis en "Pro" útgáfan kostar.
http://www.xmind.net/

 

 

Zotero

Zotero - Notað af mörgum sem ekki vilja fjárfesta í EndNote. EndNote fóru í mál við Zotero á sínum tíma vegna þess að þeir notuðu EndNote skrár en málið var látið niður falla og því er Zotero enn að sækja í sig veðrið á þessum markaði. Hægt er að sækja íslenskan þýðingarstaðal með því að smella hér.
http://www.zotero.org/

Nánari upplýsingar

 

R logo

Líklega er R meðal þess hugbúnaðar sem er í mestri þróun í heiminum í dag. Svo til allir háskólar heims nota þennan hugbúnað. Notandinn sér R sem þægilegt og öflugt forritunarmál. Til eru rúmlega 2000 sérstakir hugbúnaðarpakkar fyrir R til að leysa sérstök verkefni. R er mikið notað á fagsviðum eins og fiskilíffræði, sameindalíffræði og reiknilegri líffræði. Flest ef ekki öll námskeið á vegum Stærðfræðiskorar notast við R.

Allar tölvur í tölvuverum hafa R. Þar er hægt að leysa flest verkefni. Sum verkefni eru þó svo frek á reikniafl að hentugra er að nota öflugar Unix eða Linux fjölnotandavélar í vinnsluna. Notandinn þarf þá að tengjast fjölnotandavélinni með SSH.

R - Hugbúnaðinum er oft líkt við SPSS tölfræðiforritið og er ókeypis.
http://www.r-project.org/

 

PSPP

PSPP - Þetta er einnig forrit sem er svipar til SPSS en er einnig frítt.
http://www.gnu.org/software/pspp/

 

Sage

Sage - Stærðfræðiforrit sem framleiðindur vilja meina að sé ókeypis hliðstæða af Matlab, agma, Maple og Mathematica.
http://www.sagemath.org/

 

Open XML / ODF Translator Add-ins for Office

Open XML / ODF Translator Add-ins for Office - með þessari viðbót getur MS Office skrifað og lesið ODF (OpenDocument Format) skráarformið. Þetta skráarform er staðlað s.kv. ISO/IEC 26300 staðli. Þetta skráarform er mikilvægt vegna þess að það tryggir að hægt sé að lesa og skrifa skjölin jafnvel áratugum seinna. Þetta er hægt með miklu úrvali af hugbúnaði, bæði séreignarhugbúnaði og frjálsum og opnum hugbúnaði.
http://odf-converter.sourceforge.net/download.html

 

PuTTY opið og frjálst forrit

PuTTY - fjölnotendavélin katla.rhi.hi.is og tölvuþyrpingin jotunn.rhi.hi.is eru fyrir alla notendur HÍ. Hægt er að tengjast þessum vélum m.a. með því að nota SSH skipanalínu. Þetta er innbyggt í Mac en fyrir Windows vélar er hægt að nota forritið Putty. 
http://www.chiark.greenend.org.uk/~sgtatham/putty/

 

FileZilla

FileZilla - FileZilla er öflugt forrit sem sér um gagnaflutning. Styður meðal annars FTP, SFTP og FTPS (FTP yfir SSL/TLS).
http://filezilla-project.org/

 

MikTEX

MiKTeX - MikTeX er ritvinnslukerfi sérstaklega hannað fyrir stærðfræðitákn og formúlur.
http://miktex.org/

Síða uppfærð / breytt 25. August 2011. Númer síðu: 353

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
    • Nettengingar
    • Tölvupóstur og dagatal
    • Heimasvæði
    • Prentun
    • Ugla
    • Forrit
      • Opin forrit
      • EndNote
      • MindManager
      • SPSS
      • Office
      • SAS
      • Afþjöppun skráa (.zip)
      • Íslenskt notendaviðmót
      • Gögn
      • Question Writer
      • Sanako Lite
    • Stýrikerfi
    • Símtæki
    • Efnisorðalisti
  • Almennar upplýsingar
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is