Hvernig á að skanna í skönnum í tölvuverum RHÍ
Hér eru leiðbeiningar um hvernig nota á þá skanna sem staðsettir eru í tölvuverum RHÍ. Skanna er að finna í tölvuverum í Háskólatorgi 204, Öskju 166 og VR-II, 260.
1. Þegar komið er að skannanum má sjá þennan skjá hér að neðan. Smellið á "E-mail. Send your document as an attachment to e-mail"

2. Byrjað er á því að skrá sig inn. Smellið á hvíta reitinn undir "Username" og þá kemur upp lyklaborð. Sláið þar inn notandanafnið ykkar (án @hi.is) og smellið svo á "OK".
3. Smellið því næst á hvíta reitinn fyrir neðan "Password" og sláið þá inn lykilorðið ykkar (sama og á Uglu) og smellið á "OK".


Þetta er skjárinn sem notast er við þegar texti er sleginn inn. Hægt er að skipta á milli hástafa og lágstafa með því að ýta á "Shift".
4. Næsta skref er að velja hvert á að senda skjalið sem skannað er. Smellið á auða flötinn fyrir neðan "To". Setjið inn ykkar eigið netfang ef þið viljið sjálf fá það sem skannað er. Hér á að að setja inn fullt póstfang (t.d. abc12@hi.is).
Undir "Subject" getið þið sett inn þann texta sem þið viljið að birtist hjá móttakanda fyrir "Subject".

5. Að lokum er svo ýtt á "Send E-mail" hnappinn efst á skjánum til að hefja skönnun.
ATH að þið getið einnig smellt á örina sem vísar niður (More Options) til að velja ýmsar stillingar, eins og t.d. hvort þið viljið .pdf eða .jpg og í hvaða gæðum o.s.frv.

