RHÍ Fréttir

nr. 34 maí 1998

  

  

  Þorkell Heiðarsson         Ragnar Stefán Ragnarsson
thorkell@rhi.hi.is            ragnarst@rhi.hi.is

Vefsíðugerð og veftól

Vefgerð verður auðveldari og aðgengilegri með hverjum deginum sem líður og sífellt koma fram ný tól til þess að auðvelda vefferlið.

Grunnskrefin

Þegar vefað er á háskólaneti má skipta ferlinu í fjögur þrep:

  1. Vinna síðurnar í vefgerðartóli
  2. Vistun vefsíðunnar undir möppunni .public_html á heimasafni viðkomandi.
  3. Opun heimasafnsins og vefsíðnanna fyrir utanaðkomandi aðgangi
  4. Viðhald/uppfærsla vefsíðanna

Þrátt fyrir að þetta séu grunnskref í vefsíðugerð er unnið að því að einfalda og fækka þessum skrefum. Stefnt er að því að um einungis eitt skref verði að ræða í framtíðinni. Þannig geta PC notendur nú þegar tengst vefsíðusvæðinu beint og unnið með vefsíðurnar eins og þær væru á harða disknum. (Sjá umfjöllun um tengingu heimasafns (SAMBA): RHÍ Fréttir nr. 31 eða á vefslóðinni:

http://www.rhi.hi.is/utgafa/frett//97mai/7.html

Fyrsta skrefið

Í þessari grein tökum við fyrir fyrsta þrepið. Fjallað verður um hin ýmsu vefgerðartól, kosti þeirra og galla.

Netscape Composer 4

Fæst ókeypis á netinu undir slóðinni:

http://home.netscape.com/download/index.html

Kostir: Einfaldur og mjög þægilegur fyrir þá sem nota Netscape vafrarann að staðaldri, en Composer er innbyggður í Netscape Communicator / Navigator Gold. Mjög einfalt er að setja upp texta, tengla og grafík.

Gallar: Hentar ekki vel fyrir flóknari vefsíðugerð eins og t.d. uppsetningu á römmum og töflum.

Microsoft Word

(Fylgir Office 97 fyrir PC og Office 98 fyrir Mac)

Kostir: Einfaldur fyrir þá sem nota Word ritvinnsluna mikið. Auðvelt að snúa Word skjölum yfir á vefform sem er helsti kostur þessa forrits.

Gallar: Takmarkaðir möguleikar á vefsmíði.

Microsoft Frontpage 98

Kostir: Mjög öflugt tól á flestum sviðum. Auðvelt er að setja upp tengla, myndir og texta. Ramma og töflugerð með þessu forriti er sérstaklega auðveld. Auk þessa er innbyggt í forritið tól til að halda utan um vefsíðuskipulag. Fæst bæði fyrir Mac og PC.

Gallar: Vefskipuleggjarinn er flókinn í uppsetningu á háskólaneti en þó er auðvelt að nota ritilshluta forritsins (edit) þótt skipuleggjarinn sé ekki notaður.

Claris HomePage

Kostir: Forritið er auðvelt í notkun og ræður við flestar gerðir vefsíðna. Það er ódýrt og hefur aðallega notið vinsælda hjá Macintosh notendum en fæst þó einnig fyrir PC. Forritið býður upp á góða samvinnslumöguleika við File Maker (einnig frá Claris) gagnagrunnskerfið.

Gallar: Rammagerð er ekki sérstaklega einföld. PC notendur gætu talið það galla að viðmótið í forritinu notfærir sér ekki að fullu þá möguleika sem Win95/NT býður uppá.

Sérstakir möguleikar

Í nýjustu vefgerðartólunum er mikil áhersla lögð á einfalda vefsíðugerð þannig að fólk á að geta skellt upp vefsíðu á örskammri stundu.
Í Front Page er boðið upp á tilbúnar vefsíður, sumar allflóknar, sem notandinn getur síðan fyllt út í (mynd). Þannig gæti notandi forritsins búið til mjög fagmannlega útlítandi vefsíðu án mikillar fyrirhafnar.
Í Netscape Composer er boðið upp á allsérstakan möguleika, en hægt er að tengjast vefsíðu hjá Netscape sem hjálpar þér að búa til einfalda vefsíðu skref fyrir skref. Þetta virkar mjög vel, en er þó einungis nothæft fyrir mjög einfaldar síður og er nokkuð tímafrekt þegar tengst er með mótaldi. Í Composer getur vefari einnig unnið beint með vefsíður sem opnaðar hafa verið í Netscape. Þannig er hægt finna flottar síður á vefnum og nota síðan útlit þeirra fyrir sjálfan sig. (þó skal minnt á höfundarrétt á ýmsu því sem á vefnum er að finna)
Í Word getur notandi snúið skjalinu sínu yfir í vefsíðu (þ.e. html) með því að fara í file - save as og velja html document. Forritið skilar útliti skjalanna á viðunandi hátt.
Þegar unnið er með töflur sker Front Page sig nokkuð úr. Mjög þægilegt er að vinna með töflur í forritinu og hægt er að teikna upp töflur "fríhendis" með hjálp músarinnar. Þetta er einnig mögulegt í Word.
Af ofangreindum forritum ráða Hompage og Frontpage við rammasmíðar. Þar sem erfitt er að lýsa vefrömmum á einfaldan hátt bendum við á eftirfarandi vefsíðu sem dæmi um slíkt: www.centrum.is
Í Frontpage er rammagerð sérlega þægileg. Hægt er velja úr tilbúnum römmum og fylla síðan inn í þá.

  
Notendaþjónusta RHÍ,  16. febrúar 2000 

Efnisyfirlit Fyrri grein Næsta grein Fyrri blöð