VPN fyrir MacOs

Hér eru leiðbeiningar um hvernig þið setjið upp VPN tengingu á þeim MacOs stýrikerfum sem ekki eru með PPTP valmöguleika. Gildir fyrir MacOs Sierra (10.12) og nýrra. Einnig er mögulegt að þetta virki á eldri útgáfur af MacOs og með öðrum VPN hugbúnaði.

ATH að þessi skref þarf aðeins að gera einu sinni. Þegar búið er að setja upp þessa tengingu er nóg að fylgja skrefum 11 og 12 til að tengjast með VPN-i.

1) Byrjið á að sækja client uppsetningarskrána client.ovpn
Sækja eduroam skrá

2) Farið því næst á tunnelblick.net og smellið á grænu píluna:
Download latest stable release

3) Farið í Downloads og opnið Tunnelblick skrána:
Opnið tunnelblick skránna

4) Tvísmellið á Tunnelblick merkið:
Tvísmellið á Tunnelblick

5) Smellið á "Open":
Smellið á Open

6) Setjið inn lykilorð tölvunnar og smellið á "OK":
Lykilorð tölvunnar

7) Þá er VPN clientinn kominn inn á tölvuna og birtist sem tákn uppi í hægra horninu, smellið á það og veljið "VPN upplýsingar":
VPN upplýsingar

8) Þá opnast þessi gluggi. Dragið "client.ovpn" skrána úr downloads eða þaðan sem þið vistuðuð hana í Configurations gluggann. Það gæti verið að þið þyrftuð að fara í "admin mode". Það gerið þið með því að smella á lásinn efst til hægri:
Dragið client.ovpn yfir í Configurations gluggann

9) Hér veljið þið hvort þið setjið skrána inn fyrir alla notendur tölvunnar eða bara þann notanda sem skráður er inn:
Velja hvaða notendur á að setja skránna upp fyrir

10) Setjið inn lykilorð tölvunnar og smellið á "OK":
Lykilorð tölvunnar

Nú er vélin tilbúin til að tengjast UTS með VPN. Héðan í frá er nóg að gera eftirfarandi skref til að tengjast:

11) Smellið á Tunnelblick íkonið uppi í hægra horninu og veljið "Connect client":
Smellið á Connect client

12) Setjið inn notandanafnið ykkar  (ekki með @hi.is)og Uglu lykilorð og smellið á "Í lagi":
Setjið inn notandanafn og lykilorð

Og þá ættuð þið að vera tengd. Jeijjjj...  :D