• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

Vefsíða birtist ekki - Access forbidden

  • Heimasvæði

Ef að upp kemur "Access forbidden" á heimasíðu notenda eftir að búið er að flytja efni á milli þá hefur það með réttindamál að gera.

Nokkrar leiðir eru til að leysa þetta.

1. Mappa www drifið

Best er að "mappa" heimasíðusvæðið beint og draga þannig gögnin beint yfir á svæðið. Þá lenda notendur ekki í þessum réttindavandamálum. Heimasíðusvæðið er "mappað" með slóðinni \\heima.rhi.hi.is\www . Það er ekki nóg að mappa \\heima.rhi.hi.is\notandanafn og fara þar inn í möppuna .public_html og draga gögn þar inn, því þá lendir maður einmitt í réttindavandamálum. Sjá hér hvernig þið mappið heimasíðusvæðið.

2. Gefa réttindi á möppur

Ef þú ert með svæðið mappað getur þú hægrismellt á viðkomandi möppu eða skjal og gefið aðgang. Hægrismelltu á viðkomandi möppu eða skjal og veldu properties. Þar er hægt að breyta aðgangi. Sjá ferlið hér (Windows):

  1. Hægrismella á viðeigandi möppu/skrá og velja "Properties".
  2. Velja flippann "Security"
  3. Klikka á "Edit" hnapp.
  4. Valmynd merkt "Group or user names:" sýnir hópa sem gætu haft
    aðgang og önnur valmynd fyrir neðan merkt "Permissions for X", þar
    sem X er valinn hópur, sem sýnir hvaða aðgang hópurinn hefur. Velja
    hvern hóp og haka við reitina "Read & Execute" og "Write". Svo klikka á
    "OK" hnappinn og aftur á "OK" hnappinn í Properties.

 

3. Gefa réttindi á allt vefsvæðið

Til að setja almenn lesréttindi inná vefsvæðið þitt þarft þú að logga þig inná Kötlu og gefa skipunina "rettindi". Þú þarft að hlaða niður forriti sem gerir þér kleift að gera það td. SSH sjá link: http://ftp.hi.is/pub/win/internet/SSH/SSHSecureShellClient-3.2.9.exe

Þegar þú hefur hlaðið niður forriti og sett það upp tengist þú Kötlu með því að setja undir host name: katla.rhi.hi.is og í framhaldi notandanafn og lykilorð.

Þá gefurðu skipunina "rettindi" beint í skipanalínu og smellir á "Enter". Þetta breytir réttindum á public svæðinu og ættu þessar línur að sjást í kjölfarið:

Set aðgang drwx--x--x á /vd/notandanafn
Set aðgang drwx------ á ~/Mail
Set aðgang drwx------ á ~eudora
Set aðgang drwxr-xr-x á ~/.public_html og öll skráasvæði þar undir
Set almennan lesaðgang á allar skrár undir ~/.public_html

Gefa skipunina réttindi í Kötlu

Síða uppfærð / breytt 27. January 2012. Númer síðu: 200

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
    • Nettengingar
    • Tölvupóstur og dagatal
    • Heimasvæði
      • Algengar spurningar
      • Möppun drifa
      • SFTP tengingar
      • Aðgangstýring
      • Sync-a
      • Vefsíða birtist ekki - Access forbidden
    • Prentun
    • Ugla
    • Forrit
    • Stýrikerfi
    • Símtæki
    • Efnisorðalisti
  • Almennar upplýsingar
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is
test