Vandræði með að opna Office skjöl vegna nýrri útgáfu af Office
Ef ekki tekst að opna Office skjöl sem eru vistuð í nýrra Office umhverfi (.docx, .xlsx o.s.frv.) þá fylgið eftirfarandi skrefum:
- Nauðsynlegt er að vera með full réttindi inn á vélina (administrator).
- Mælt er með því að Office 2004 sé uppfært. Það er gert t.d. með því að opna Word og smella þar á Help og þar undir Check for Updates.
- Sækja þarf næst þessa skrá: OfficeOpenXMLConverter
- Keyrið þessa skrá og þá opnast gluggi. Tvísmellið þar á Install Open XML Converter og fylgið leiðbeiningunum.
- Þegar uppsetningu er lokið þá tvísmellið á það skjal sem á að opna og þá mun þessi Converter breyta skjalinu þannig að þið getið opnað það.

