RHÍ Fréttir

nr. 24 febrúar 1995

  

  

Steingrímur Birgisson

Upplýsingakerfi Háskóla Íslands

Ákveðið var nú í kringum áramótin að ráðast í útvíkkun á Upplýsingakerfi Háskóla Íslands, sem hefur verið fram að þessu í Gopher, og útfæra það fyrir World-Wide Web, eða Veraldarvíðsvefinn (Vefinn) eins og nú er farið að kalla hann dags daglega. Með Vefnum kemur inn ný vídd í dreifingu upplýsinga á Interneti, en það er myndræn framsetning sem er eitt af þeim meginatriðum sem hafa stuðlað að stórauknum vinsældum Vefsins og notkun Internetsins í dag.

Nú er til dæmis hægt á heimasíðu Háskólans á Vefnum að skoða "RHÍ Fréttir" með þeim myndum sem þeim fylgja og handbók um "Notkun Unix véla hjá Reiknistofnun" sem gefin var út á síðasta ári meðal annars.

Talsvert hefur borið á misskilningi í umfjöllun um Vefinn, og þá sér í lagi þegar talað hefur verið um svokallaðar "Netscape/ Mosaic-tengingar". Til áréttingar þá eru Netscape og Mosaic forrit til þess að ferðast um Vefinn (browsers) en til að nota þessi verkfæri þarf að tengjast Interneti.

Hvað með Gopher?
Gopher verður ennþá til staðar þannig að þeir sem hafa ekki aðgang að Vefnum geta notast við hann. Í raun er útvíkkunin á Upplýsingakerfinu á Vefnum ekki svo mikil því allt sem er geymt í Gopher er aðgengilegt á Vefnum og verður uppsetningin á því fyrst um sinn að einhverjum hluta tengd við Gopher. Allar fréttir af dauða Gophers eru því stórlega ýktar.

Heimasíða Háskóla Íslands á Vefnum
Byrjað er að uppfæra heimasíðu HÍ á Vefnum og breyta útliti hennar töluvert. Þessu verki er enn ekki lokið og mega notendur því eiga von á að síðan líti ekki eins út í dag og í gær.

Síðan er byggð upp á ýmsum meginþáttum HÍ sem síðan er hægt að smella á með músinni til að fá síðu fyrir þann meginþátt sem valin var til nánari upplýsinga. Sérhver síða inniheldur ýmsar upplýsingar eins og til dæmis texta, myndir, hljóð, tengingar við aðrar síður og svo framvegis.

Ef til dæmis síða Reiknistofnunar er valin er þar hægt að finna handbók um notkun Unix véla sem hefur að geyma rit sem hefur verið útbúið sérstaklega til birtingar á Vefnum. Þar er meðal annars hægt að smella á atriðisorð í atriðisorðaskránni og er þá flett sjálfkrafa upp þeim stað þar sem viðkomandi atriðisorð kemur fyrir í handbókinni.

Þróunin með tilkomu á World-Wide Web
Það sem Gopher stóð fyrir var og er enn það sem kalla mætti staðbundið upplýsingakerfi innan HÍ, en með tilkomu Veraldarvíðsvefsins og það sem hann stendur fyrir er það sem kalla mætti andlit Háskóla Íslands bæði inn á við fyrir háskólafólk og út á við fyrir almenning hér á landi og í raun út um allan heim!

Úti í heimi er það orðið keppikefli háskólanna að hafa síðurnar sínar sem ýtarlegastar í harðri samkeppni þeirra á milli. Þær eru í raun orðnar eins konar auglýsing fyrir háskólann út á við og það sem hann stendur fyrir, án þess þó að þær glati gildi sínu sem upplýsingaveita gagnvart honum sjálfum inn á við.

Þannig eru dæmi þess að sumir háskólar hafi sett námsskrána ásamt ýtarlegum námskeiðalýsingum í síðurnar sínar til upplýsinga fyrir nemendur innan háskólans og sem auglýsingu fyrir hann út á við til væntanlegra nemenda sem sjá þá hvað er í boði hjá viðkomandi háskóla.

  
Notendaþjónusta RHÍ,  16. febrúar 2000 

Efnisyfirlit Næsta grein Önnur fréttabréf RHÍ