• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

SFTP tengingar (áður FTP)

  • Heimasvæði

Oft er gott að geta tengst heimasvæði sínu án þess að þurfa að mappa drif eða fara í gegnum Uglu. Þá getur verið góður möguleiki að notast við SFTP tengingu.

SFTP er í raun örugg FTP tenging en við mælum eindregið á móti því að fólk noti FTP þar sem lykilorðið er ekki öruggt þegar sú tenging er notuð.

Það sem þarf að vita til að tengjast er:

  • Host: katla.rhi.hi.is

Hægt er að nota hin ýmsu forrit til að tengjast með SFTP. Hér má finna nokkur af þeim vinsælustu: http://lifehacker.com/5039956/five-best-ftp-clients

Hér á eftir má sjá hvernig þið tengist með FileZilla og WinSCP.

 

FileZilla logoFileZilla

Til að tengjast með FileZilla þá smellið þið á "File" og veljið "Site Manager".

Smellið á "New Site" og setjið inn eftirfarandi:

  • Host: katla.rhi.hi.is
  • Servertype: SFTP - SSH File Transfer Protocol
  • Logontype: Normal
  • User: þitt notandanafn (ATH ekki setja @hi.is fyrir aftan)
  • Password: Lykilorð (Sama og í Uglu)

Smellið því næst á "Connect" og þá ættuð þið að tengjast svæðinu.

FileZilla uppsetning

WinSCP logoWinSCP

Til að tengjast með WinSCP þá fyllið þið í eftirfarandi reiti:

  • Host Name: katla.rhi.hi.is
  • User name: þitt notandanafn (ATH ekki setja @hi.is fyrir aftan)
  • Password: Lykilorð (Sama og í Uglu)
  • File protocol: SFTP

ATH að nú getið þið smellt á Save ef þið viljið eiga þessar stillingar og þá mun hún birtast undir "Stored sessions".

Smellið á "Connect" og þá mun WinSPC reyna að tengjast heimasvæðinu ykkar. Það gætu komið upp ýmsar aðvaranir þar sem svæðið er ekki þekkt en þið smellið þá á "Yes" og "Continue" til að leyfa tenginguna.

WinSCP stillingar

Síða uppfærð / breytt 14. October 2011. Númer síðu: 550

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
    • Nettengingar
    • Tölvupóstur og dagatal
    • Heimasvæði
      • Algengar spurningar
      • Möppun drifa
      • SFTP tengingar
      • Aðgangstýring
      • Sync-a
      • Vefsíða birtist ekki - Access forbidden
    • Prentun
    • Ugla
    • Forrit
    • Stýrikerfi
    • Símtæki
    • Efnisorðalisti
  • Almennar upplýsingar
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is