Tölvupóstur og dagatal
Allir notendur HÍ fá sitt eigið netfang sem samanstendur af notandanafni með @hi.is fyrir aftan.
Hægt er að nálgast tölvupóstinn beint í gegnum vafrann (vefpóst) eða í gegnum hin ýmsu tölvupóstforrit eins og Outlook, Mail, farsíma, Thunderbird o.s.frv.
Notandinn notar sama notandanafn og lykilorð og hann hefur í Uglu.
- Nemendur hafa 1GB geymslupláss í tölvupóstinum (framhaldsnemar hafa allt að 2GB)
- Starfsmenn hafa óendalegt geymslupláss fyrir tölvupóstinn. 1GB fylgir með notendanafninu en rukkað er fyrir gagnamagn þegar pósthólfið fer yfir 1GB samkvæmt gjaldskrá og stækkar það sjálfkrafa þegar þess er þörf.
Hér til vinstri og að ofan má sjá frekari leiðbeiningar varðandi hvernig má nálgast póstinn sinn í hinum ýmsu viðmótum ásamt öðrum upplýsingum sem tilheyra tölvupósti.
Almennar stillingar fyrir tölvupóstinn má finna hér: http://www.rhi.hi.is/tolvupoststillingar_almennt







