• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

Notendanöfn og lykilorð

  • Lykilorð
  • Notandanafn

NotendanöfnNotendanöfn

Nemendur:

Notendanöfn nemenda samanstanda af þrem til fjórum bókstöfum og svo tölustöfum þar fyrir aftan. Ástæðan fyrir þessu vali á notendanöfnum er til að gera notendum kleift að halda sínum aðgangi eftir útskrift og RHÍ þarf þannig aldrei að endurnýta notendanöfn.

Nemendur geta ekki breytt notendanöfnum sínum nema í algjörum undantekningar tilvikum og þá þurfa að vera vel rökstuddar ástæður fyrir því að breytingin gangi í gegn.

Eftir að nemandi hættir hjá HÍ, lokast á aðgang hans eftir u.þ.b. 3 mánuði.
Lokunin
er tilkynnt í tölvupósti og er hægt að biðja um framlengingu á aðgangi í
2 mánuði til viðbótar og áframsendingu pósts í annað pósthólf. Til að
biðja um framlengingu þarf einfaldlega að svara lokunartilkynningunni.

Athugið:
Útskrifaðir nemendur sem hafa notandanafn sem samanstendur af 3-4
bókstöfum og tölustaf munu halda notandanafn sínu eftir útskrift. Hér má lesa nánar um útskrift nemenda og það sem í boði er eftir útskrift.

Starfsmenn:

Starfsmenn geta í upphafi valið sér notandanafn og þarf sú beiðni að koma frá skrifstofu um leið og umsókn um starfmann berst til Reiknistofnunar. Notendanöfn starfsmanna geta verið hvað sem er upp í 8 stafi hámark.

Breyting á notendanöfnum er ekki æskileg hjá starfsmönnum. Við breytingu á notandanafni fer í gang nokkuð flókin aðgerð þar sem það þarf að breyta notandanafninu í mörgum kerfum Reiknistofnunar og því má búast við einhverjum erfiðleikum í upphafi. En starfsmönnum stendur það þó til boða en Reiknistofnun vill að það sé ljóst að búast má við einhverjum erfiðleikum fyrstu dagana.

Þegar starfsmaður hættir hjá HÍ, sendir skrifstofan lokunartilkynningu til Reiknistofnunar. Um leið fær viðkomandi tölvupóst þess efnis að loka skuli aðganginum. 7 dögum síðar lokast aðgangurinn ef engar athugasemdir hafa borist. Fyrir þann tíma þarf viðkomandi að vera búinn að taka afrit af öllum gögnum og tölvupósti.

Lykilorð

Lykilorð

Lykilorð hvers notanda er hans eigið og ekki má gefa það upp né láta einhvern  annan nota sinn aðgang. Ef grunur leikur á að einhver hafi komist yfir lykilorðið skal breyta því strax í Uglu.

Ef notandi hefur gleymt eða týnt lykilorði þarf að útbúa nýtt.

ATH að lykilorð verða að vera 8 stafir að lengd og innihalda að minnsta kosti einn tölustaf og einn hástaf.

Síða uppfærð / breytt 15. November 2012. Númer síðu: 48

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
  • Almennar upplýsingar
    • FAQ
    • Tölvuþjónusta RHÍ
    • Notendanöfn og lykilorð
      • Mikilvægar upplýsingar um lykilorð
      • Breyta lykilorði
      • Breyting á notendum
      • Innskráning heppnast ekki
      • Týnt lykilorð
    • Ráðstefnur
    • Tölvuver
    • Atburðaskrá RHÍ
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is