Hér má finna leiðbeiningar hvernig þú setur upp VPN tengingu í eldri gerð af Windows 10.
ATH að ekki er hægt að tengjast með VPN-i ef þú ert nú þegar tengd(ur) neti HÍ.
1) Opnaðu "Network and Sharing Center". Það getur þú t.d. gert með því að hægrismella á net-íkonið neðst til hægri á tækjastikunni og velja þar "Network and Sharing Center":
2) Þegar hingað er komið smellum við á "Set up a new connection or network":
3) Smellið á "Connect to a workplace" og því næst "Next":
4) Merkið við "No, create a new connection" og smellið á "Next":
5) Smellið hér á "Use my Internet connection (VPN)":
6) Hér skrifið þið:
- Internet address: vpn.hi.is
- Destination name: VPN HÍ (eða eitthvað nafn sem er lýsandi fyrir tenginguna)
- Hakið við "Remember my credentials" ef þetta er einkatölva sem þið hafið lokaðan aðgang að. Annars sleppið þið við að haka hér.
Smellið því næst á "Create"
7) Nú er VPN tengingin til en við þurfum að breyta nokkrum stillingum áður en við getum tengst. Farið aftur í "Network and Sharing Center" (Sjá skref 1). Smellum þar á "Change adapter settings":
8) Hægrismellum hér á VPN tenginguna sem við vorum að búa til og veljum "Properties".
9) Hér veljum við "Security" flipann og breytum eftirfarandi:
- Type of VPN: Point to Point Tunneling Protocol (PPTP)
- Data ecryption: Maximum strength encryption...
- Tökum öll hök út undir "Allow these Protocol" nema skiljum hak eftir í "Microsoft Chap version 2"
- Smellum því næst á "OK".
10) Nú þegar allt er klárt þá á bara eftir að tengjast. Til eru ýmsar leiðir til að nálgast tenginguna. Ein er að smella á net-íkonið neðst í hægra horninu og velja þar svo VPN tenginguna sem við vorum að búa til (ATH að núna vinstrismellum við á íkonið):
11) Þá opnast þessi gluggi. Smellið hér á VPN tenginguna og loks á "Connect":
12) Hér erum við beðin um notandanafn og lykilorð. Mikilvægt er að fylla þetta rétt út:
- User name: ykkar notandanafn og þar fyrir aftan skrifa nemendur @nemendur.hi.is (dæmi abc123@nemendur.hi.is). Starfsmenn skrifa sitt notandanafn og setja fyrir aftan @starfsm.hi.is (dæmi abc@starfsm.hi.is)
- Password: sama lykilorð og í Uglu og vefpóst
Smellið því næst á "OK" og þá ætti vélin að tengjast VPN-i háskólans.
Næst þegar þið þurfið að tengjast er nóg að fylgja þessum leiðbeiningum frá skrefi 10:
ATH að ekki er hægt að tengjast með VPN-i ef tölvan er á Háskólanetinu