• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

Niðurhal gagna af námskeiðum og hópum í Uglu

  • Niðurhal gagna
  • Ugla

Öll þau gögn sem tilheyra námskeiðum og hópum má sækja og vista niður í vélina með einföldum hætti í gegnum Uglu.
Hér á eftir má sjá hvernig þetta er gert:

Hægt er að velja á milli þess að skoða og velja skjöl allra námskeiða og hópa eða skoða og velja skjöl úr einstaka námskeiði.

Velja skjöl allra námskeiða og hópa:

1. Skráðu þig inn í Ugluna.

2. Smelltu á "Uglan mín" og veldu þar "Skjöl námskeiða og hópa"

Uglan mín - Skjöl námskeiða og hópa

3. Nú sérð þú lista yfir öll skjöl námskeiða og hópa. Hægt er að leita að ákveðnum skjölum og einnig hægt að búa til síur til að gera leitina nákvæmari.

4. Smelltu á "Opna Síu" ef þú vilt búa til síu.

5. Hakaðu við þau skjöl sem þú vilt sækja. Ef þú smellir á efsta hakið í bláa borðanum þá merkir þú við öll skjöl á þessari síðu (ATH síðurnar gætu verið fleiri og þá þarf að gera það sama á þeim til að ná í allt)

6. Smelltu því næst á "Þjappa og sækja" takkann. Þá vistar þú öll valin skjöl á tölvuna hjá þér í Zip-skrá. Sjá hér hvernig þú afþjappar svo þessa Zip-skrá.

Listi yfir öll skjöl

Velja skjöl einstakra námskeiða:

7. Skráðu þig inn í Ugluna.

8. Smelltu á "Uglan mín" og því næst "Námskeiðin mín" og veldu það námskeið sem um ræðir.

Námskeiðin mín

9. Hér getur þú smellt á Zip-táknið fyrir aftan "Skjalageymsla" til að sækja öll skjöl í þeirri möppu sem sýnd er. ATH að undirmöppur eru ekki sóttar um leið og því þarf að fara inn í hverja möppu og endurtaka ferlið ef þú vilt eiga allar möppurnar eins og þær eru á námskeiðinu.

10. Þú getur einnig smellt á "Nýjustu skjöl, umræður og tenglar" til að fá lista yfir öll skjöl í tilteknu námskeiði.

Námskeið

11. Þegar þú ert búin(n) að smella á "Nýjustu skjöl, umræður og tenglar" þá smellir þú á "Skoða öll efnisatriði".

Skoða öll efnisatriði

12. Þegar þangað er komið þá sérðu lista yfir öll gögn tiltekinns námskeiðs. Þar getur þú merkt við öll gögn eða einstök gögn og sótt eins og sýnt var í skrefi 6

Síða uppfærð / breytt 1. September 2010. Númer síðu: 295

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
    • Nettengingar
    • Tölvupóstur og dagatal
    • Heimasvæði
    • Prentun
    • Ugla
      • Flýtileiðir
      • Forsíða Uglu
      • K2
      • Leit í Uglu
      • Mínir molar
      • Niðurhal gagna
    • Forrit
    • Stýrikerfi
    • Símtæki
    • Efnisorðalisti
  • Almennar upplýsingar
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is