Linux í tölvuverum
Nemendur sem óska eftir því að geta keyrt Linux í tölvuverstölvunum er bent á tölvuver 166 í Öskju.
Fyrst þarf að endurræsa vélina sem á að nota og velja svo að ræsa eina af nokkrum útgáfum af Ubuntu Linux stýrkerfinu. Sé ekkert valið innan 10 sekúndna, ræsir tölvan sjálfvirkt Windows stýrkerfi.

Til þess að velja viðeigandi stýrkerfi þarf að ýta á einn af eftirfarandi hnöppum 1,2 eða 3 og svo enter hnappinn. Á myndinni hér fyrir ofan hefur verið valið 1. Ubuntu Linux LTSP terminal.
Stýrikerfið ræsist á um 20 sekúndum og lýkur með því að notandi getur skráð sig inn í tölvuna með notandanafni og lykilorði en fyrst þarf notandinn að velja setu (session) og tungumál.

Það er gert með því að smella á Preferences neðst í vinstra horni.

Við það kemur upp lítill gluggi til að ákvarða tegundina af setu.

Smellt er á listann þar sem stendur Default og veldu KDE setu.

Síðan þarf að smella á "Change Session". Eftir þetta fer notandinn allltaf í KDE setu þegar hann hefur skráð sig inn.

Tungumál er valið á sama hátt.

Eins og áður þarf að smella á hnappinn "Change Languge". Eftir þetta getur notandinn skráð notandanafn sitt. Hér er notandinn annaj.

Þar á eftir lykilorð:

Sé lykilorðið rétt, birtist skjárinn með KDE setu.

Þá er hægt að snúa sér að verkefnum.

