Kapalnet MacOs Leopard
Til að finna MAC addressu fyrir kapalnetið (Garðanet) í MacOs Leopard þarf að fylgja eftirfarandi skrefum.
1. Smellið á Eplið og veljið þar "System Preferences".

2. Tvísmellið hér á "Network".

3. Smellið á "Built-in Ethernet" og svo "Advanced".

4. Smellið á Ethernet flipann. Hér finnið þið MAC addressu Ethernet netkortsins og kallast hún "Ethernet ID".

5. Þegar MAC addressan er fundin þarf að skrá hana í Ugluna. Hér má sjá nánar hvernig þið sækið um Garðanetið eða IP tölu.

