Heimasvæði
Þegar notandanafn er búið til fær notandinn aðgang að heimasvæði sínu. Stærð heimasvæða nemenda er 4GB. Stærð heimasvæða starfsmanna er ótakmarkað.
Undir heimasvæði er falin mappa sem kallast .public_html.
Þessi mappa er fyrir vefsíður og gögn sem notandi vill hafa aðgengileg frá sinni vefsíðu.
Slóðin að vefsíðunni er http://notendur.hi.is/notandanafn
Aðgangur að öðrum svæðum, svo sem sameiginlegum svæðum deilda og nemendafélaga, er veittur af kerfisstjórum RHÍ eftir að póstur með beiðni þess efnis berst í gegnum help@hi.is





