• English
  • Ugla
  • Vefur HÍ
  • Vefpóstur
Home

Garðanet

  • Garðanet
  • Nettengingar

GarðanetÍbúar á Stúdentagörðunum hafa fría internettengingu fyrir eina tölvu eða einn router.

Sá sem sækir um Garðanetið þarf að vera skráður fyrir íbúðinni og oft tekur skráningin íbúðarinnar 1-2 daga að berast til okkar frá Félagsstofnun stúdenta. Skráning á nettengingunni tekur hins vegar ekki nema 30 mínútur eftir að hún berst til okkar í gegnum Uglu.

Ekki er í boði þráðlaust net á Görðunum og því þarf að tengja tækin með kapli.

Svona er ferlið til að sækja um Garðanetið.

1. Finna MAC addressu kapalnetkortsins.

Fyrst þarf að finna MAC addressu kapalnetkortsins. ATH að þetta er ekki sama MAC addressa og þegar sótt er um þráðlausa netið. Smellið á viðeigandi stýrikerfi til að sjá leiðbeiningar um það. (smellið hér til að fá hjálp með að finna rétt stýrikerfi)

  • Windows 8
  • Windows 7
  • Windows Vista
  • Windows XP
  • MacOs Leopard (10.5 +)
  • MacOs Tiger (10.4)

ATH: Notandinn sem skráður er fyrir íbúðinni getur einungis sent inn eina MAC addressu.

2. Skrá MAC addressuna

Skrá sig inn í Uglu (ugla.hi.is) og þar undir "Tölvuþjónusta" velur þú "Nettenging" og svo "Stúdentagarðar" og loks "Garðanet umsókn".

 

Garðanet umsókn

Þá opnast þessi gluggi og þar skrifið þið inn MAC addressuna. Ekki þarf
að hafa bil á milli stafa og stórir stafir og litlir stafir skipta ekki
máli hér. Svo er smellt á Senda. 30 mínútum síðar er skráningin komin í
gegn.

Ef þú hefur ekki þennan möguleika í Uglunni þá er einhver annar skráður fyrir íbúðinni eða að skráningin er ekki komin í gegn til okkar.

3. Stilla netkortið rétt.

Oftast nær þarf ekki að gera meira en stundum er netkortið ekki rétt stillt til að taka við IP tölu og því þarf að stilla það rétt. Smelltu á rétt stýrikerfi til að sjá hvernig þú stillir netkortið rétt.

  • Windows 8
  • Windows 7
  • Windows Vista
  • Windows XP
  • MacOs Leopard (10.5 +)
  • MacOs Tiger (10.4)

Þegar búið er að fylgja þessum 3 liðum þá ættir þú að vera með netsamband á Görðunum. Ef það hins vegar er ekki að virka athugaðu þá þessa síðu: Vandræði með Garðanettenginuna.

Síða uppfærð / breytt 6. November 2012. Númer síðu: 196

Efni

  • Forsíða
  • Leiðbeiningar
    • Nettengingar
      • Þráðlaust net - HINET
      • Garðanet
        • Router stillingar
        • Vandamál
      • ADSL
      • VPN tengingar
      • Ráðstefnunet
      • IP tölur
      • Ljósleiðari GR
      • MAC addressur
      • Proxy stillingar
      • eduroam
    • Tölvupóstur og dagatal
    • Heimasvæði
    • Prentun
    • Ugla
    • Forrit
    • Stýrikerfi
    • Símtæki
    • Efnisorðalisti
  • Almennar upplýsingar
  • Um Reiknistofnun

Leita

Tenglar

  • Ip talan mín
  • Hraðamælir
  • Háskólablogg
  • Kerfi netdeildar
  • Nemendafélög
  • Tölvuver
  • Tölvuþjónusta RHÍ
  • Vefsíður háskólaborgara
  • student.is
  • Atburðaskrá RHÍ
  • IHPC

HPC

HPC

Reiknistofnun Háskóla Íslands | Sturlugötu 8 | 101 Reykjavík | Sími 525 4761 | Fax 552 8801 | Netfang help@hi.is