Nemendur sem óska eftir því að geta keyrt Linux í tölvuverstölvunum er bent á tölvuver 166 í Öskju.
Fyrst þarf að endurræsa vélina sem á að nota og velja svo að ræsa eina af nokkrum útgáfum af Ubuntu Linux stýrkerfinu. Sé ekkert valið innan 10 sekúndna, ræsir tölvan sjálfvirkt Windows stýrkerfi.
Síða uppfærð / breytt 6. March 2012. Númer síðu: 678
Mikið hefur verið beðið um að gera stundatöflur tölvuvera aðgengilegar notendum svo þeir geti áttað sig á því hvar laus tölvuver séu án þess að þurfa að mæta á staðinn.
Nú getum við upplýst ykkur um það að nú
er hægt að nálgast stundatöflurnar í Uglu. Ef þið smellið á
Tölvuþjónusta -> Tölvuver -> Stundatöflur tölvuvera þá fáið þið
upp lista með stundatöflum tölvuvera.
Síða uppfærð / breytt 22. March 2011. Númer síðu: 590
Reiknistofnun Háskólans hefur um nokkurt skeið tekið að sér að birtingu skjáauglýsinga í tölvuverum Háskólans. Svör við öllum helstu spurningum varðandi þessar auglýsingar er að finna hér að neðan.
Hvernig birtast þessar auglýsingar?
Auglýsingarnar eru venjulegar .gif eða .jpg myndir sem birtast á tölvuskjám í tölvuverum RHÍ; annars vegar í 10 sekúndur eftir að notandi hefur slegið inn notendaauðkenni og lykilorð (login), og hins vegar eftir að vinnslu er lokið í tölvu.
Síða uppfærð / breytt 3. December 2012. Númer síðu: 294