Pósthólf fyirr hópa í SOGo eru mjög einföld og þægileg.
Pósthólfið birtist sem mappa í þínum eigin pósti. Reyndar er þetta sem undirmappa undir möppu sem heitir "Other Users".
Til að geta sent tölvupóst í nafni hópsins eða nemendafélagsins, þarf að biðja Reiknistofnun sérstaklega um að bæta netfangi nemendafélagsins í mail breytuna í LDAP. Það er einungis gert ef beiðnin er trúverðug, það er ef beiðnin kemur frá stjórn eða forráðamönnum viðkomandi fræðasviðs.
Síða uppfærð / breytt 12. November 2012. Númer síðu: 717
Hjá Reiknistofnun höfum við þá reynslu að nemendafélög skipti oft um stjórnir og formenn en vilji halda í sögu félagsins. Við höfum reynt að styðja þetta með því að búa til pósthólf sem tengjast félögunum, þannig að næstu stjórnir hafi aðgang að tölvupóstsamskiptum fyrri ára.
Af þessum ástæðum var ákveðið að setja ofangreind netföng upp sem sjálfstæð pósthólf, frekar en sem alias á núverandi formann.
Síða uppfærð / breytt 12. November 2012. Númer síðu: 716
RoundCube vefpóstviðmótinu mun verða lokað 1. október og við tekur SOGo kerfið sem er mun öflugra og býður upp á fleiri kosti eins og dagatal ofl.
Allur póstur er aðgengilegur í báðum kerfum eins og er en eftir 1. október þá mun ekki lengur vera hægt að notast við RoundCube. Ef þið eruð með nafnspjöld eða netfangaskrá (address book) í RoundCube þá þurfið þið sjálf að færa það yfir í SOGo. Hér er sýnt hvernig það er gert.
Hér eru grunnatriðin sýnd varðandi lestur og meðhöndlun á pósti. Hvernig á að búa til möppur og hvernig hægt er að draga póst í möppur og hvernig þær eru búnar til.
Síða uppfærð / breytt 6. October 2011. Númer síðu: 641