Mailman er nafn á þeim hugbúnaði sem sér um flesta póstlista innan HÍ. Þú sem notandi að póstlista getur nálgast ýmsar upplýsiningar, skráð og afskráð þig af póstlista, breytt lykilorði o.m.fl. Hér verður því fjallað um hvað þú getur gert í Mailman.
Hvað er hægt að gera í Mailman:
Síða uppfærð / breytt 15. March 2011. Númer síðu: 576
Á hi-starf listanum er hægt að nálgast fréttir og umræður sem skráðir notendur senda á listann. Flestir starfsmenn Háskólans eru skráðir á listann og með því að skrá sig á listann fá þeir allan þann póst sem sendur er á hi-starf@hi.is áframsendan á sitt netfang, og geta jafnframt sent póst á listann frá sínu netfangi.
Önnur leið er að efni listans. Með því að bæta listanum inn sem fréttalista (newsgroup) er hægt að lesa alla nýja pósta, en ekki hægt að senda inn pósta. Þessi aðferð var mikið notuð hér áður fyrr og má með þessu móti einnig nálgast efni margra annarra lista.
Síða uppfærð / breytt 31. August 2010. Númer síðu: 245
Til að segja upp áskrift af póstlista þá ferðu inn á heimasíðu póstlistans.
Þú ferð á http://listar.hi.is/mailman/listinfo/nafn póstista (t.d. http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf) og slærð inn póstfangið þitt neðst á síðunni og smellir svo á Edit Options. Ath ef þú ert að segja upp aðild að öðrum lista þá breytið slóðinni til samræmis við þann lista.
Síða uppfærð / breytt 31. August 2010. Númer síðu: 174
Póstlistar Háskóla Íslands eru fjölmargir og flokkast vanalega eftir efni þeirra. Hægt er að sækja um áskrift að póstlistum og einnig segja þeim upp að eigin vild.
Hér í efnislistanum vinstra megin má sjá hvernig þú sækir um áskrift að póstlista eða hvernig þú segir þeim upp ásamt fleiru varðandi póstlista.
Síða uppfærð / breytt 31. August 2010. Númer síðu: 169