Panti viðskiptavinur þjónustu á ljósleiðaratengt heimili þá á hann ekki rétt á heimsókn verktaka enda er GR áður búin að senda verktaka á heimilið til að ganga frá búnaði og tengingum fyrir Ljósleiðarann. Pantanir sem berast á ljósleiðaratengd heimili eru afgreiddar þannig að rétthafabreyting er framkvæmd að því gefnu að ekki sé virkur viðskiptavinur fyrir á heimilinu.
Síða uppfærð / breytt 27. November 2012. Númer síðu: 728
Ef viðskiptavinur er að flytja þjónustuna sína frá einu ljósleiðaratengdu heimili yfir á annað þá skal notandi senda flutningsbeiðni til RHÍ en ekki hefðbundna pöntun. Flutningsbeiðni þarf að innihalda allar þær upplýsingar sem venjuleg pöntun uppfyllir en að auki þurfa að vera upplýsingar um;
Hvenær á að flytja þjónusturnar, það er hvaða dag er GR óhætt að taka niður þjónustu á gamla notkunarstaðnum og flytja þær yfir á nýja notkunarstaðinn.
Síða uppfærð / breytt 27. November 2012. Númer síðu: 727
Ef notandi er með tengibox en enga virka þjónustu, t.d. vegna þess að hann hefur sagt upp allri þjónustu á ljósleiðara eða er að flytja í nýja íbúð, þá þarf að senda inn pöntun og ferlið verður það sama og fyrir "Ljósleiðari er kominn inn í húsið/íbúðina en ekkert tengibox"
Síða uppfærð / breytt 27. November 2012. Númer síðu: 726
Ef starfsmaður HÍ vill flytja Internetþjónustu til RHÍ þá þarf hann að senda tölvupóst á netfangið help@hi.is. Í tölvupóstinum þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi auk umsóknar um tengingu við HÍnet yfir ljósleiðara GR.
Athugið að áskrift á ljósleiðaratengingu hjá GR verður að vera á kennitölu starfsmanns HÍ. Áskriftin getur til að mynda ekki verið á kennitölu maka eða leigusala. Athugið að beinirinn/rúterinn sem er í notkun getur hugsanlega verið eign þess þjónustuaðila sem á að segja upp.
Síða uppfærð / breytt 19. December 2012. Númer síðu: 724
Til að festa IP tölu í Windows 8 þá skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum.
1. Smellið á Windows takkann á lyklaborðinu eða farið með bendilinn neðst
til vinstri og smellið til að komast í "Start" valmyndina.
2. Byrjið strax að skrifa "network" og veljið því næst "Settings"
hægra megin á skjánum. Finnið síðan í listanum vinstra megin "Network
and Sharing Center" og smellið á það.
Síða uppfærð / breytt 6. November 2012. Númer síðu: 710
Til að tölvan geti tekið við IP tölum frá Reiknistofnun í Windows 8 þá þarf að stilla netkortið eins og hér er sýnt. Þetta á t.d. við um Garðanetið.
1. Smellið á Windows takkann á lyklaborðinu eða farið með bendilinn neðst
til vinstri og smellið til að komast í "Start" valmyndina.
2. Byrjið strax að skrifa "network" og veljið því næst "Settings" hægra megin á skjánum. Finnið síðan í listanum vinstra megin "Network and Sharing Center" og smellið á það.
Síða uppfærð / breytt 6. November 2012. Númer síðu: 709