Auglýsingar á skjáhvílum í tölvuverum
Reiknistofnun Háskólans hefur um nokkurt skeið tekið að sér að birtingu skjáauglýsinga í tölvuverum Háskólans. Svör við öllum helstu spurningum varðandi þessar auglýsingar er að finna hér að neðan.
Hvernig birtast þessar auglýsingar?
Auglýsingarnar eru venjulegar .gif eða .jpg myndir sem birtast á tölvuskjám
í tölvuverum RHÍ; annars vegar í 10 sekúndur eftir að notandi hefur slegið
inn notendaauðkenni og lykilorð (login), og hins vegar eftir að vinnslu er lokið í tölvu.
Þegar tölvan er ekki í notkun fer í gang skjásvæfa (e. screensaver) sem skiptir um auglýsingu á mínútu fresti. Skjáir í tölvuverum eru flestir 19", og allar myndir birtar í a.m.k. 1280 x 1024 pixla upplausn (high color / true color).
Tölvur í tölvuverum RHÍ eru nú um 300 talsins, auk þess sem auglýsingar birtast einnig í fyrirlestrarsölum Háskólans.
Smellið hér til að sjá kort af staðsetningu tölvuvera á Háskólasvæðinu.
Hvernig er þessi miðill frábrugðinn öðrum auglýsingamiðlum?
- Þetta er mjög áhrifarík leið til að ná til þröngs markhóps.
- Allar tölvur sem birta auglýsingar eru tengdar Interneti og því stutt
að fara ef notandinn vill afla sér frekari upplýsinga um vöru/þjónustu á
vef. - Auglýsendur eru fáir á hverjum tíma (hámark 10).
Hvers konar fyrirtæki hafa helst auglýst á þennan hátt?
Sem dæmi um auglýsendur má nefna tölvufyrirtæki, verslanir, fjármála- og
fjármögnunarfyrirtæki, banka og sparisjóði, símafyrirtæki, bílaumboð,
leikhús, veitingastaði og líkamsræktarstöðvar svo fátt eitt sé nefnt.
Hvað kostar skjáauglýsing í tölvuverum?
Skipt er um auglýsingar á viku fresti og því reikningsfært fyrir a.m.k.
einnar viku birtingu. Í vikugjaldi er innifalin birting 1 - 2ja mismunandi mynda frá hverjum aðila.
Vikugjald er kr. 35.000, + VSK.
Stofnanir, deildir og nemendafélög innan HÍ fá 50% afslátt af þessu verði.
Hvernig panta ég auglýsingu?
Til að panta auglýsingu eða fá frekari upplýsingar skal senda tölvupóst á help@hi.is. Það sem koma þarf fram í pöntun er:
- Nafn og netfang þess sem pantar (tengiliður)
- Nafn fyrirtækis, hóps eða þess sem er að auglýsa
- Kennitala þess sem greiðir fyrir auglýsinguna
- Auglýsingin sjálf í upplausninni 1280 x 1024 pixlar, jpg, gif eða tif
Athugið: Myndir þurfa að berast á help@hi.is fyrir kl. 12.00 á föstudegi til að tryggt sé að auglýsing birtist vikuna eftir.

